Fjórar milljónir fermetra af grasi

Framkvæmdir Umhverfi

""

Mikill fjöldi starfsmanna og verktaka er við grasslátt  í Reykjavík og lýkur annarri sláttuumferð í næstu viku. „Við erum samkvæmt áætlun með þessa vinnu,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins. Slá þarf gras á tæplega 400 hektara lands í hverri umferð þannig að hver yfirferð tekur sinn tíma. Hektari er 10.000 fermetrar þannig að alls eru þetta fjórir milljón fermetrar sem fara þarf yfir í hverri umferð.

Guðjóna segir að starfsmenn Reykjavíkurborgar vinni af krafti í þessum málum og nefnir að unnið sé á 120 sláttuorfum, 20 minni sláttutækjum og 15 traktorum með sláttutækjum og grassöfnurum. „Við bættum við fólki og tækjum til að mæta ábendingum,“ segir Guðjóna og hún segir að á stærri svæðum verði umferðum fjölgað í ár um eina, úr þremur í fjórar umferðir. Hún segir fólk oft ekki átta sig á umfangi þessa verks og að sjálfsögðu þurfi að skoða hve margir hektarar eru ætlaðir á hvern starfsmann og bera þannig saman við önnur sveitarfélög.

400 hektarar slegnir í hverri umferð

Svæðin sem þarf að slá í Reykjavík eru eins og áður segir nær 400 hektarar og skipta Reykjavíkurborg og Vegagerðin með sér verkum.

• Svæði við þjóðvegi í Reykjavík eru um 115 hektarar og eru þar slegið 4 sinnum yfir sumarið.

• Almenningsgarðar og sérstök almenningssvæði, svo sem Arnarhóll, samtals 22 hektarar eru slegnir vikulega.

• Svæði við almennar umferðargötur, manir, sláttutæk opin svæði og lóðir leikskóla og grunnskóla, samtals 264 hektarar eru slegið 3 – 4 sinnum yfir sumarið.

Sláttutímabilið leggst á 12 vikur- frá 25. maí - 20. ágúst. Þar sem slegið er þrisvar sinnum líða minnst fjórar vikur á milli umferða og reynt hefur verið að slá síðustu umferð eins seint og mögulegt er til að draga úr sinu.

Staðan í dag

Eins og áður segir lýkur annari sláttuumferð í næstu viku. Seljahverfi og Hólahverfi  klárast í dag eða byrjun næstu viku. Vesturbærinn er að klárast. Breiðholtið og Árbær er nánast búið.  Grafarvogur í næstu viku. Austurbærinn í næstu viku.