Fjör á tónheimili Kamps

Með óformlegum kennsluaðferðum og reynslunámi hafa börnin á frístundaheimilum Kamps í vetur verið að semja lög sem þau ætla m.a. að flytja í Hörpu á Barnamenningarhátíð.

Á þessu skólaári hefur frístundamiðstöðin Kampur unnið að metnaðarfullu tónlistarverkefni undir nafninu Tónheimili Kamps. Þetta er tilraunaverkefni sem fékk styrk frá þróunarsjóði Skóla- og frístundasviðs og miðar að því að vekja áhuga barna á tónlist og hljóðfærum með því að nota óformlegar kennsluaðferðir sem miðast að reynslunámi (e. learning by doing) og að sköpunarkraftur hvers og eins fái notið sín.

Verkefnið hefur gengið mjög vel og munu frístundaheimilin sýna afrakstur þessarar vinnu á stórtónleikum í Hörpu á Barnamenningarhátíð 2013. Hvert frístundaheimili mun á tónleikunum frumflytja lög sem þau hafa samið á Tónheimilinu ásamt því að taka öll sömul þátt í lokaatriði en þá munu börnin flytja lagið Dýrð í Dauðaþögn eftir tónlistarmanninn Ásgeir Trausta.