Sólin skein í Breiðholti í dag, beint á kollinn á börnunum á smíðavellinum við Hólmasel. Þar hafa hressir krakkar á aldrinum 9-12 ára unnið við smíðar og sköpun undanfarnar vikur. Í næstu viku opnar smíðavöllur við Fellagarða og enn er hægt að skrá börn til þátttöku þar.