Fjör á námskeiðsdegi dagforeldra
Um 160 dagforeldrar mættu á árlegan námskeiðsdag sem haldinn var í Vodafone höllinni við Hlíðarenda föstudaginn 15. mars. Góður rómur var gerður að fyrirlestrum dagsins.
Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennari hélt erindi sem hún kallaði Af hverju tónlist og hreyfing með með ungum börmum? og Þórólfur Guðnason, yfirlæknir hjá sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, fjallaði um hvað væri til ráða við sýkingum hjá ungum börnum. Þá kynnti
Berglind Hansen, sérfræðingur hjá SFS, niðurstöður kannana vegna daggæslu gerðar á liðnu ári.
Eftir hádegi kom Helga Braga sem fjallaði um eigið viðhorf á léttu nótunum og fékk námskeiðsgesti með sér í skemmtilegan leik.
Námskeiðsdagur dagforeldra hefur fest sig í sessi sem mikilvægur liður í símenntun og sem leið til að styrkja tengslin og félagsauðinn.