Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn tekur þátt í safnanótt 8. febrúar og býður í heimsókn til dýranna í myrkrinu. Boðið verður upp á göngu í gegnum gripahúsin. Leiðsögumaður kemur að hliði Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og leiðir áhugasama í gegnum gripahúsin. Athugið að ekki er hægt að koma inn í miðja göngu þar sem hliði verður lokað þegar ganga hefst klukkan 19.00. Búast má við að gangan taki tæpa ...klukkustund.