Íbúafundur með borgarstjóra í Árbæ var fjölmennur. Um sextíu manns mættu til fundarins sem haldinn var í Árbæjarskóla. Á
fundinum fór borgarstjóri yfir þau verkefni sem hafa verið framkvæmd í hverfinu og að því loknum gafst íbúum færi á að spyrja borgarstjóra og æðstu embættismenn Reykjavíkurborgar spjörunum úr. Spurningarnar voru margar og fjölbreyttar en meðal þeirra mála sem brenna á fólki eru skipulag, uppbygging íþróttamannvirkja, bílastæði, öryggi og viðhald göngu- og hjólastíga, viðhald skóla og skólalóða, óhóflegur vöxtur aspartrjáa, illgresi og lúpínuvöxtur, svo fátt eitt sé nefnt.
Að loknu erindi borgarstjóra og fyrirspurnum var samráðsvefurinn www.betrireykjavik.is kynntur og farið yfir það hvernig maður ber sig að við að setja inn hugmyndir. Þeir sem treysta sér einhverra hluta vegna ekki til að nota vefinn geta að sjálfsögðu leitað til þjónustumiðstöðva og bókasafna eftir aðstoð við að koma hugmyndum sínum frá sér.
Seinni hluta fundarins nýttu íbúar til að spjalla við embættismenn um sín hjartans mál í hverfinu en margir nýttu sér einnig tækifærið til að vinna að hugmyndum í nafni fundarins og bjóða sig fram í verkefnahóp sem mun fylgja þeim eftir. Margar áhugaverðar hugmyndir litu dagsins ljós og verða þær settar inn á samráðsvefinn á næstu dögum. Íbúar eru hvattir til að kynna sér hugmyndirnar þar, styðja þær eða hafna eftir atvikum og leggja sínar röksemdir í púkkið. Verkefnahópurinn er nú einnig fullskipaður - tveimur konum og einum karli.
Reykjavíkurborg þakkar fyrir lærdómsríkan og skemmtilegan fund. Næsti fundur verður haldinn í dag í Hagaskóla og eru íbúar Vesturbæjar hvattir til að fjölmenna á hann.
Sjá frétt um fundaröðina og dagskrá funda: http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-34527
Ítarefni: