Fjölmennur fundur með borgarstjóra í Vesturbæ

Umhverfi Framkvæmdir



Á annað hundrað manns sóttu íbúafund borgarstjóra í Hagaskóla í gær. Þetta var þriðji fundurinn í röðinni en áður hefur borgarstjóri fundað í Laugardal og Árbæ. 

 

Á fundinum fór borgarstjóri yfir verkefnin í hverfinu og sat fyrir svörum ásamt embættismönnum í líflegum fyrirspurnartíma.

 

Rætt var um stór og smá mál - allt frá illa staðsettum ljósastaurum sem lýstu inn í svefnherbergi fólks til fjármálalæsis grunnskólabarna, ruslastampa og sorpflokkunar, íþróttamannvirkja, einstefnu- og tvístefnugatna, öryggis gangandi vegfarenda, aðgengis að strandlengjunni, hæð nýbygginga og skipulagi íbúabyggðar.

 

Margar ábendingar bárust um það sem betur má fara en íbúar komu einnig á framfæri ánægju með það sem vel er gert - t.d. í starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar.

 

Að þessu loknu var stutt kynning á www.betrireykjavik.is og Betri hverfum, farið yfir verkefnið og hvernig á að setja inn hugmyndir á vefinn.

 

Margir fundargesta notuðu tækifærið og tóku embættismenn tali á meðan aðrir settust niður með starfsfólki borgarinnar og settu niður á blað hugmyndir um verkefni að Betri hverfum - sem hafa nú þegar ratað á samráðsvefinn. Alls bárust vel á annan tug fjölbreyttra og áhugaverðra hugmynda um hvernig Vesturbæingar vilja bæta hverfið sitt.

 

Nokkrir íbúar gáfu kost á sér í verkefnishóp til að vinna frekar með hugmyndir hverfisins og stuðla að því að hverfisbúar geti kosið um 30 hugmyndir í rafrænni kosningu í mars. Í lok fundar voru nöfn þriggja íbúa dregin út og hefur hópurinn því verið fullskipaður.

 Reykjavíkurborg þakkar Vesturbæingum kærlega fyrir uppbyggilegan og skemmtilegan fund. Næsti íbúafundur borgarstjóra verður með íbúum Háaleitis og Bústaða og eru allir velkomnir. Fundurinn hefst kl. 17. mánudaginn 21. janúar í Réttarholtsskóla

Ítarefni:

Ræða borgarstjóra

Fundargerð Vesturbæjar