Druslugangan var farin þriðja sinn í miðborginni á laugardaginn þann 27. júlí sl. Um 5000 manns tóku þátt í göngunni í fyrra en mun fleiri tóku þátt í ár enda viðraði vel til göngunnar. Farið var af stað frá Hallgrímskirkju klukkan tvö og var gengið niður Skólavörðustíg og endað á Austurvelli. Með göngunni vildu skipuleggjendur vekja athygli á kynferðisbrotum og færa ábyrgðina frá þolendum til gerenda. „Ekki segja konum að vera ekki of ögrandi eða kynþokkafullar til að koma í veg fyrir nauðgun heldur segja körlum að hætta að nauðga.“
Boðið var upp á dagskrá á Austurvelli þar sem Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, var meðal ræðumanna. Dagur sagði meðal annars að það væri mikilvægt að muna eftir fólkinu sem ruddi brautina gegn kynferðisofbeldi og skömm í samfélaginu.
„Við erum hér í dag til að undirstrika samstöðu okkar með þeim og undirstrika að við erum til í slaginn með þeim. Og með öllum þeim sem eru útsettir fyrir kynferðisofbeldi.“
Ræða Dags B. Eggertssonar.