Gyltan Skrítla bætti sex grísum við íbúatöluna í svínastíunni en hún gaut föstudagskvöldið 8. febrúar. Gotið gekk vel og eru þau öll við hestaheilsu. Gyltur ganga með grísi í 114 til 116 daga eða þrjá mánuði, þrjár vikur og þrjá daga. Við got eru grísirnir rúmlega 500 grömm en stækka mjög hratt af næringargóðri móðurmjólkinni. Grísir gyltunnar Skoppu er komu í heiminn á Jóladag eru nú sem risar í samanburði við grísi Skrítlu.