Fjölgun gistirýma fyrir utangarðsmenn

Velferð

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum, 28. nóvember sl., að fjölga neyðargistirýmum fyrir heimilislausa karla í Reykjavík, og verði þau útbúin í húsnæði sem borgin á við Vatnsstíg. Gistirýmin eru til bráðabirgða eða til vors en þá mun nýtt gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn opna að Lindargötu. Með þessari viðbót ætti ekki að þurfa að vísa heimilislausum frá gistirými í vetur en nokkuð hefur borið á því að mönnum sé vísað frá Gistiskýlinu í Þingholtsstræti.

Samkvæmt upplýsingum frá Gistiskýlinu dró nokkuð úr frávísunum í október og nóvember. Frávísanir voru 148 í september og 53 í október en þá voru nokkrar nætur án frávísunar. Meðalfjöldi þeirra sem gistu í októbermánuði var 19,7 miðað við 16 til 17 að jafnaði árin 2011 og 2012. Gistirými í Þingholtsstræti eru tuttugu.



Fyrstu tvær vikurnar í nóvember voru frávísanir hins vegar aðeins tvær og báðar sama kvöldið. Þrátt fyrir þessa miklu fækkun frávísana telur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar skynsamlegt að hafa til reiðu aukagistirými fram til næsta vors, þegar nýtt Gistiskýli verður tekið í notkun að Lindargötu 48.



Húsnæðið sem um ræðir er í eigu borgarinnar að Vatnsstíg og hægt er að nýta það tímabundið sem neyðargistirými, án þess að til þurfi að koma verulegur kostnaður vegna breytinga á húsnæðinu eða sérstakar leyfisumsóknir vegna breytinga á notkun húsnæðis. Hægt verður að taka húsnæðið í notkun strax í desember.



Í húsnæðinu verður eingöngu boðið upp á gistingu. Kvöldhressing og morgunverður verða áfram í boði í húsnæði Gistiskýlisins að Þingholtsstræti 25. Gert er ráð fyrir að starfsmenn Gistiskýlisins fylgi gestum sem ekki fá inni í Gistiskýlinu í viðbótargistirýmið. Þar verður næturvakt og næturgestum fylgt aftur í Gistiskýlið morguninn eftir, kjósi þeir að snæða morgunverð þar.