Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær, 28. nóvember, deiliskipulag fyrir Vesturbugt og Nýlendureit.
Nýtt deiliskipulag fyrir Vesturbugt leggur áherslu á vistvæna byggð. Nýja byggðin mun einkennast af vönduðum almenningsrýmum og atvinnuhúsnæði á jarðhæð sem mun skapa grundvöll fyrir iðandi mannlíf. Byggðin mun styðja við fjölbreytta starfsemi í kringum gömlu höfnina. Öll svæði utanhúss verða vandlega hönnuð almenningsrými. Reiturinn verður því mun meira aðlaðandi fyrir mannlíf og útivist en hann er í dag.
Byggðin verður þétt sem er liður í þeirri stefnu að auka byggðina í nálægð við vinnustaði, verslun og þjónustu miðborgarinnar. 0,8 bílastæði verða á íbúð sem þýðir að hægt verður að selja minni íbúðir án bílastæða sem lækkar kostnað töluvert og ýtir undir fjölbreytta íbúasamsetningu. Gert er ráð fyrir að 20% íbúða verði leiguíbúðir.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi átti að fjarlægja slippinn og rífa hluta verbúða við Suðurbugt. Horfið er frá því samkvæmt þessu deiliskipulagi og munu slippur og verbúðir fá að standa.
Hús lækkuð og stíg bætt við
Samráð við hagsmunaaðila var eitt af markmiðum deiliskipulagsvinnunar, haldinn var fjölmennur fundur í Sjóminjasafninu Vík þar sem tillagan var kynnt auk þess sem farnar voru tvær fjölmennar göngur um skipulagssvæðið til þess að kynna rammaskipulagið sem tillagan byggir á. Komið var til móts við athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma deiliskipulagsins með því að lækka hús næst hafnarbakkanum úr fimm hæðum í fjórar. Þá voru hús við Hlésgötu lækkuð til að gera húsahæðir á reitnum fjölbreyttari. Aðeins eitt hús á reitnum verður fimm hæðir. Þá hefur verið bætt við stíg á norðausturhluta reits 03A en fyrri deiliskipulagstillaga var gagnrýnd fyrir að húsin sem standa næst hafnarbakka mynduðu nánast einn samfelldan vegg. Stígurinn dregur úr þessum áhrifum en rík áhersla er lögð á sjónása frá Mýrargötu niður að höfninni sem eykur tengsl gömlu byggðarinnar við sjóinn og höfnina.
Kjöraðstæður fyrir vistvæna ferðamáta
Skipulagið gerir ráð fyrir 195 íbúðum og tæplega 8.000 fermetra af atvinnuhúsnæði sem verða í nánum tengslum við gömlu höfnina sem verður áfram starfrækt sem stærsta fiskihöfn landsins. Rík áhersla er lögð á góðar hjóla- og göngutengingar við miðborgina og gerð er krafa um að hjólastæði séu fyrir hverja íbúð og atvinnustarfssemi á svæðinu. Þannig verður húsnæðið á reitnum fjölbreytt en gert er ráð fyrir hóflegri blöndu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Þetta býður upp á kjöraðstæður fyrir vistvæna ferðamáta.
Sett er skilyrði um að mismunandi arkitektastofur komi að hönnun og útliti húsanna til þess að tryggja fjölbreytileika.
Vistvænar lausnir
Gerð er krafa um græn þök á byggingum sem þýðir að gras eða annar gróður verður á þökum en hann einangrar hús, bindur kolefni og minnkar þörf á upphitun auk þess að binda vatn sem gufar í kjölfarið upp. Regnvatn af þökum sem vanalega er leitt í ræsi verður leitt í gegnum náttúrulega ferla. Slík lausn mun fegra almenningsrýmin og gera þau einstök í borginni.
Nýstárlegar lausnir í sorpmálum á svæðinu ýta undir flokkun sorps og auðvelt verður að bæta flokkunarmöguleikum við. Affallsvatn húsa verður notað til að hita upp almenningsrými á reitnum. Hæðarlega svæðisins tekur mið af nýjustu spám um hækkun sjávarstöðu.
Nýlendureitur minnkaður
Helsta breyting deiliskipulags Nýlendureits felst í smærri reit, vegna þess að ákveðið hefur verið að falla frá því að færa Mýrargötu norður fyrir Slippfélagshúsið, Mýrargötu 2 – 4. Mýrargata í núverandi legu afmarkar reitinn til norðurs.
Hætt er við að lengja Bræðraborgarstíg niður að Mýrargötu, en þess í stað gert ráð fyrir göngustíg sem liggur í beinu framhaldi af Bræðraborgarstíg frá Vesturgötu yfir Nýlendugötu og niður að Mýrargötu. Leiksvæði milli Vesturgötu og Nýlendugötu, sem hefur nýlega verið endurbætt og fegrað, verður látið halda sér, í stað þess skipta því niður í lóðir, eins og deiliskipulagið sem samþykkt var 2007 gerði ráð fyrir.
Lóðir fyrir flutningshús
Þar sem núverandi legu Mýrargötu verður ekki breytt og vegna breytinga deiliskipulags norðan Mýrargötu, sem áður var Slippa- Ellingsenreitur, en nefnist nú Vesturbugt, er gert ráð fyrir að Seljavegur haldi núverandi stefnu sinni. Þá myndast meira rými fyrir byggingar. Lagt er til að byggja megi raðhús á horni Seljavegs og Mýrargötu, en ein lóð á reitnum verður ætluð flutningshúsi. Þar sem skortur er á lóðum fyrir lítil flutningshús er gert ráð fyrir að önnur flutningshúsalóð fyrir lítið hús verði á horni Nýlendugötu og Seljavegs.
Nú liggur fyrir tillaga með nánari útfærslu rússneskrar rétttrúnaðarkirkju og hefur byggingarreitur kirkjunnar verið sniðinn að þeirri tillögu. Ekki er lengur gert ráð fyrir bílageymslu undir kirkjunni og lóð kirkjunnar verður opin og aðgengileg almenningi. Til að koma til móts við athugasemdir varðandi stærð kirkjunnar var byggingarreitur hennar þrengdur enn frekar, þannig að bygging á 75% grunnflatar megi ekki fara yfir 12 m (var áður 17 m), tveir litlir turnar megi fara upp í 17 m og einn stór turn í allt að 22 m.