Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 var samþykkt í borgarstjórn í dag. Gjaldskrár fyrir skóla- og frístundaþjónustu og velferðarþjónustu borgarinnar hækka ekki á næsta ári. Framlög til frístundakortsins eru hins vegar aukin sem nemur 5.000 krónum á barn sem er talsverð búbót fyrir barnafjölskyldur. Að auki var fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2014-2018 samþykkt.
Stærstu viðbæturnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 fara til skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs sem eru stærstu fagsvið borgarinnar.
Gjaldskrár Reykjavíkurborgar fyrir skóla- og frístundamál, t.a.m. leikskólagjöld, frístundagjöld og mataráskrift í skólum, munu ekki hækka né gjaldskrár fyrir velferðarþjónustu. Þessar gjaldskrár verða því áfram með þeim allra lægstu á landinu auk þess sem barnmargar fjölskyldur njóta ríkulegra afslátta. Þar að auki hyggst borgin auka gæði skólamáltíða.
Að auki munu framlög til frístundakortsins hækka um 5,000 krónur á barn. Frístundakortið geta fjölskyldur notað til að greiða niður gjöld vegna íþróttaiðkana, tónlistarnáms og annarrar tómstundaiðkunar barna. Þarna er því um talsverða búbót fyrir barnafjölskyldur að ræða.
„Ákvörðun okkar að draga til baka boðaðar gjaldskrárhækkanir er skynsamleg. Hún er okkar mikilvæga framlag til komandi kjarasamninga Með þessu stígur Reykjavíkurborg fyrsta skrefið í því að halda niðri verðbólgudraugnum,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.
Fjárfest í skólum, sundlaugum og borgarumhverfi
Samkvæmt fjárfestingaráætlun mun Reykjavíkurborg leggja um 8.4 milljarða í fjárfestingar á árinu og fyrirtæki, sem borgin er meirihlutaeigandi að, rúmlega annað eins. Þetta eykur kraftinn í atvinnulífi borgarinnar. Framundan eru stór verkefni í uppbyggingu og viðhaldi skólamannvirkja. Skólalóðir verða endurbættar víða í borginni og haldið verður áfram við endurnýjun gatna í miðborginni og víðar. Hafist verður handa við ný skóla- og íþróttamannvirki í Úlfarsárdal og byggingu nýrrar útisundlaugar við Sundhöllina í Reykjavík.
Fjárhagurinn styrkist jafnt og þétt
Samkvæmt frumvarpinu styrkist hagur Reykjavíkurborgar jafnt og þétt. Unnið er hörðum höndum að því að greiða niður skuldir samstæðunnar, A- og B-hluta, en þar eru skuldir Orkuveitu Reykjavíkur fyrirferðarmestar. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar verði jákvæð um 8,1 milljarð króna en að A-hlutinn, sem heldur utan um hinn eiginlega rekstur borgarinnar, skili 495 mkr. afgangi árið 2014. Á þessu ári er áætlað að rekstrarniðurstaða A-hluta verði jákvæð um 720 mkr.
Grunnreksturinn sterkur
Útkomuspá ársins sýnir að grunnrekstur samstæðunnar, einkum Orkuveitu Reykjavíkur og A-hluta borgarsjóðs er sterkur. Árið 2014 er áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði 18.5 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að samstæðan greiði niður skuldir um 23,4 milljarða á næsta ári en á þessu ári nema greiðslur langtímaskulda rúmum 29 milljörðum.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar styrkist um rúm 2% á milli ára, fer úr 31.3% í 33.5% og skuldsetningarhlutfall lækkar úr 179% í 161% á milli áranna 2013-2014.
Staða A-hluta er áfram sterk en eiginfjárhlutfall hans er 55.9% og handbært fé í árslok er áætlað 8.2 milljarðar.
Skuldir niðurgreiddar af krafti
Í fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir samstæðuna er gert ráð fyrir mikilli niðurgreiðslu skulda en haldið verður áfram að greiða niður langtímaskuldir Orkuveitunnar í samræmi við Planið. Vegna þeirrar niðurgreiðslu munu fjármagnsgjöld samstæðunnar snarlækka á tímabilinu og er þar um mikinn viðsnúning að ræða. Gert er ráð fyrir að afborganir langtímalána nemi um 108 milljörðum á tímabilinu.
Samkvæmt fimm ára áætlun mun rekstur A-hluta styrkjast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir að afkoman batni um 4,2 milljarða á tímabilinu.
„Fjárhagurinn hefur styrkst jafnt og þétt og borgarsjóður er sterkur. Það er mikið ánægjuefni fyrir okkur í meirihlutanum, sem höfum ástundað ábyrga og stefnufasta fjármálastjórn. Við getum verið stolt af árangrinum,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.
19 breytingatillögur samþykktar
Alls voru 17 breytingatillögur meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar á frumvarpi til fjárhagsáætlunar 2014 samþykktar á fundi borgarstjórnar og að auki tvær tillögur Vinstri grænna. Annars vegar tillaga VG um að þeir borgarbúar sem eru í atvinnuleit eða þiggja fjárhagsaðstoð fái frí bókasafnsskírteini og frítt á sundstaði borgarinnar út árið 2014 eins og verið hefur undanfarin ár og hins vegar að framlög til Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar verði aukin um tvær milljónir svo framlög til styrkjapotts mannréttindaráðs geti hækkað úr 10 í 12 milljónir.