Þriðja undanúrslitakvöldinu í Skrekk lauk í Borgarleikhúsinu í gærkvöld með sigri Fellaskóla og Laugalækjarskóla. Alls munu átta skólar keppa um Skrekkinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 25. nóvember.
Það ríkti mikil eftirvænting í salnum fyrir atriðum kvöldsins mikill stuðningur áhorfenda skilaði sér til listafólksins. Laugalækjarskóli byggði sitt atriði upp í kringum boðskapinn um að aldrei megi gefast upp, atriðið Fellaskóla fjallaði um að fá makleg málagjöld.
Nemendur, kennarar og aðrir sem koma að undirbúningnum hafa lagt mikið á sig til að koma verkunum vel frá sér. Atriðin í gærkvöldi voru skemmtilega fjölbreytt og var andrúmsloftið spennuþrungið þegar kom að því að úrslitin væru kynnt.
Alls munu átta skólar keppa um Skrekkinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 25. nóvember, sex lið sem sigruðu á úrslitakvöldunum og tvö að auki sem dómnefnd valdi úr hópi þeirra sem þegar hafa sýnt atriðin sín.
Þeir átta skólar sem keppa munu til úrslita þann 25. nóvember í Borgarleikhúsinu eru Fellaskóli, Laugalækjarskóli, Seljaskóli, Langholtsskóli, Ingunnarskóli og Réttarholtsskóli. Og liðin sem dómnefnd valdi eru úr Hagaskóla og Hlíðarskóla. Sýnt verður beint frá úrslitakvöldinu á Skjá einum.