Framkvæmdir ganga vel við nýja félagsmiðstöð í Spöng í Grafarvogi, en þar verður kirkja, félagsstarf Korpúlfa og dagdeild eldri borgara. Þessa dagana er unnið við að uppsteypu hússins og lýkur þeim áfanga nú í maí. Í sumar verður hafist handa við að ganga frá húsinu að utan, setja í glugga, einangra að utan og setja upp lerki- og flísaklæðningar. Gengið verður frá lóð að mestu fyrir veturinn, malbikað, hellulagt, gróðursett og snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir.
Hagnýta reiknilíkan um líftímakostnað
Við stjórnun framkvæmda félagsmiðstöðvarinnar í Spöng er notað reiknilíkan vegna líftímakostnaðar mannvirkja (LCC- Life Cycle Cost). Þar er horft í samhengi annars vegar á stofnkostnað og hins vegar árlegan umsýslu-, rekstrar- og viðhaldskostnað. Þannig er fundinn út árskostnaður yfir líftíma mannvirkisins. Byggt er á reynslu norðmanna, en Statsbygg í Noregi hefur frá árinu 1998 gert kröfu um að gerðir séu árskostnaðarreikningar fyrir allar opinberar byggingar í Noregi.
Með þessari aðferð er hægt að bera saman ólíka kosti og taka ákvarðanir í mannvirkjagerðinni með tilliti til kostnaðar út líftíma hennar í stað þess að horfa eingöngu á byggingakostnaðinn. Útreikningana er síðar hægt að nota til að sannprófa raunkostnað við rekstur bygginga.
Kostnaðarútreikningur á líftíma félagsmiðstöðvar í Spöng grundvallast á sundurliðaðri stofnkostnaðaráætlun og upplýsingum um endingartíma byggingarhluta og byggingarefna. Einnig opinberum upplýsingum um tryggingar, fasteignamat, orku-, vatns- og fráveitugjöld, sem og hreingerningar og fleiri útgjaldaliði.
Ekki hægt að spara nema vita hvar kostnaðurinn liggur
Guðmundur Pálmi Kristinsson, verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar vegna Félagsmiðstöðvarinnar í Spöng, segir að með þessari ígrunduðu aðferð aukist líkur til mikilla muna á að finna hagkvæmustu byggingalausnina hverju sinni. „Það er mikilvægt að sýna má fram á hvernig hægt er að lækka rekstrarkostnað með hagkvæmari og vandaðri byggingarefnum. Við verðum að þróa og mynda hagkvæmt jafnvægi milli stofn- og rekstrarkostnaðar“, segir hann.
Guðmundur Pálmi er ekki í vafa um að þessi aðferð skili árangri. „Það er ekki hægt að spara nema vita hvar kostnaðurinn liggur og að auki veitir reiknilíkanið hönnuðum og ráðgjöfum ákveðið aðhald“. Hann veitti Fasteignastofu Reykjavíkurborgar forstöðu um langt árabil og þá var meðal annars innleidd áætluð húsaleiga (innri leiga). Á grundvelli útreikninga á líftímakostnaði til 60 ára við Félagsmiðstöðina hefur árskostnaður verið áætlaður 30.835 kr. á fermetra, sem þýðir að innri leiga á fermetra verður 2.570 krónur á mánuði. Sú upphæð tekur til fjárfestingakostnaðar, umsýslukostnaðar, rekstrar- og viðhaldskostnaðar. Reiknilíkanið leggur þannig lóð á vogaskálar fyrir nákvæmari fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar næstu áratugina.
Nánari upplýsingar:
Upplýsingasíða í Framkvæmdasjá Reykjavíkurborgar – Félagsmiðstöð í Spöng.