Í sumar verður Frosti með tilraunaverkefni sem ber nafnið Félagsmiðstöð á Hjólum. Félagsmiðstöð á Hjólum er færanleg félagsmiðstöð sem hefur það að markmiði að nálgast krakka í þeirra umhverfi, hvar og hvenær sem er.
Bíllinn hefur sína föstu þrjá staði í viku þar sem hann verður staðsettur á ákveðnum tíma en inn á milli þess getur hann sprottið upp hvar sem er og hvenær sem er. Í bílnum er að finna helstu grunnafþreyingartæki sem finna má í flestum félagsmiðstöðvum.
Verkefnið hefst með grillveislu mánudaginn 10.júní hjá Hagaskóla þar sem verður boðið uppá pylsur og fjör
Fylgist með á heimsíðu Frostaskjóls (http://www.frostaskjol.is/) og á Facebook síðu Félagsmiðstöðvarinnar á hjólum.