Tvær tegundir laufblaða, álþynna af drykkjarjógúrtdós, lok af skyrdós, epli, bréfpoki, klessa af bráðnum osti, köngull, paprikubiti og lítil trjágrein var það sem krakkarnir í fjórða bekk Ísaksskóla settu á rannsóknarspýtu sem þau grófu í Grasagarðinum í haust. Þau vildu rannsaka niðurbrot lífrænna og ólífrænna leifa með því að negla valin rannsóknarefni á spýtuna. Krakkarnir settu fram tilgátur um hvað myndi rotna og hvað ekki og hvers vegna. Á miðvikudaginn var spýtan grafin upp og niðurstöður skoðaðar. Tilgátur krakkanna stóðust nánast að öllu leyti nema hvað varðaði eitt laufblað sem hafði ekki rotnað eins mikið og búast mátti við og digrir ánamaðkar undu sér vel á spýtunni. Krakkarnir höfðu orð á því þegar þau skoðuðu hvað eftir var á spýtunni að það borgar sig greinilega ekki að henda plasti og áli út í náttúruna því þeir hlutir litu enn út eins og daginn sem þeir voru grafnir í jörð í október.
Grasagarðurinn hefur í árabil átt í samstarfi við 4. bekk Ísaksskóla sem heimsækir garðinn allt 6 sinnum yfir skólaárið. Á miðvikudaginn var síðasta heimsókn þessa fjöruga og fróðleiksfúsa nemendahóps, sem hefur í vetur fræðst um fjölbreyttan gróðurinn og fuglalífið í garðinum, ræktað baunir, þæft jólaskraut úr könglum og ull, hlustað á sögur og farið í fjölmarga náttúruleiki.
Grasagarðurinn stendur fyrir fjölbreyttri fræðslu fyrir skólahópa og almenning. Heildarmarkmið fræðslunnar er að nýta hin margvíslegu plöntusöfn til fræðslu um umhverfið, garðyrkju, grasafræði, dýralíf, garðmenningu og grasnytjar sem og til eflingar útiveru og lýðheilsu. Tekið er á móti skóla-, vinnustaða- og félagahópum allan ársins hring eftir samkomulagi. Í garðinum er einnig hægt að fá lánaða grænan bakpoka fyrir leikskólahópa og yngsta stig grunnskóla.
Framundan er viðburðaríkt sumar en meðal komandi fræðsluviðburða er Morgunn í matjurtagarði 25. maí kl. 11-13 þar sem garðyrkjufræðingar og annað starfsfólk Grasagarðsins tekur á móti gestum og kynnir ræktun og nýtingu mat- og kryddjurta. Boðið verður upp á fræðslugöngur alla föstudaga kl. 13 í júní, júlí og ágúst og margt fleiri skemmtilegt er á döfinni í sumar; fræðslugöngur, sýningar, tónleikar og námskeið. Viðburðadagskrá Grasagarðsins má nálgast á forsíðu www.grasagardur.is/
Hægt er að sjá fleiri myndir á Facebook síðu Reykjavíkurborgar.