Fagleg þróun í frístundastarfi

Skóli og frístund

""
Dr. Kolbrún Þ. Pálsdóttir kynnti á fjölsóttu málþingi 1. febrúar niðurstöður sínar úr fyrstu rannsókn sem gerð hefur verið á inntaki frístundaheimilanna í Reykjavík og viðhorfum barna og starfsfólks til þess. Málþinginu var ætlað að varpa ljósi á hugmyndafræði og þróun frístundastarfs á nýju skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
 
Málþingið hófst á hressandi innleggi Oddnýjar Sturludóttur, formanns skóla- og frístundaráðs, þar sem hún lýsti m.a. því reynslunámi sem hún öðlaðist í félagsmiðstöðinni sinni sem unglingur. Aðrir fyrirlesarar voru Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ, Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ, Hildur Jóhannsdóttir, skólastjóri í Dalskóla, og Jakob Frímann Þorsteinsson, formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ. Jón Torfi fjallaði um framtíð óformlegrar menntunar og mikilvægi fagstéttar, Hildur fjallaði um samstarf fagaðila um góða dagskipan fyrir börnin og Vanda talaði um hugtök og hugmyndafræði í frístundastarfi. Jakob fjallaði síðan um útinám sem samstarfsleið og nýja bók sína sem heitir Að leika, læra og þroskast úti. Einnig voru kynnt skemmtileg þróunarverkefni, Reynsluskólinn í Kringlumýri og barna- og unglingalýðræði í Frostaskjóli og fjallað um mat á starfi frístundaheimila og félagsmiðstöðva. Málþingsstjóri var Eygló Rúnarsdóttir, verkefnastjóri.

 

Vel á annað hundrað gestir sátu málþingið. Þar var samankomið fólk sem starfar í frístundastarfi Reykjavíkurborgar og annarra sveitafélaga, kennarar og nemendur úr tómstunda- og félagsmálafræði Háskóla Íslands, fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og starfsmenn af skrifstofu SFS. Í pallborðsumræðum sköpuðust skemmtilegar umræður um faglega samþættingu, hugtakanotkun í frístundafaginu, flæði milli skóla og frístundastarfs og leiðir til að gefa hugmyndafræði frístundastarfsins aukið vægi. Málþingið bar yfirheitið Snú snú. Í lokaræðu þingsins sagði Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri SFS, að þeir sem starfi með börnum og unglingum þurfi að vinna saman. Það þurfi að snúa í takt og hafa jafnvægi milli formlegrar og óformlegrar menntunar til að einstaklingarnir fái að blómstra.

Áfram verður unnið með umræður af málþinginu í samstarfi frístundahluta SFS og Menntavísindasviðs HÍ.