Færð tefur sorphirðu

Umhverfi Samgöngur

""

Unnið er af krafti við sorphirðu í Reykjavík til að komast aftur á áætlun.  „Um leið og færðin versnaði fórum við að dragast aftur úr í sorphirðunni,“ segir Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri hjá Umhverfis- og skipulagssviði,  en hann gerir ráð fyrir að sorphirðan komist aftur í takt við auglýsta áætlun á laugardag.   

Til að vinna upp tafirnar var unnið á Þorláksmessu og einnig alla daga milli jóla og nýárs, bæði um helgina sem og á gamlársdag.  Nú á nýju ári er unnið lengur dag hvern en venjulega og einnig verður unnið á laugardag.  Í dag og á morgun verður sorp hirt í Árbæ. Þá verður farið í Grafarvoginn á morgun og hann kláraður á laugardag.

,,Hálkan er ekki að hjálpa okkur og það er erfitt að trilla fullum tunnum upp brekkur við þessar aðstæður“ segir Guðmundur.  „Við förum hægt inn húsagötur á bílunum enda ekkert grín ef margra tonna trukkar renna af stað,“ segir hann en fullhlaðinn sorpbíll vegur um 19 – 20 tonn.  Oft þarf maður að fara á undan bílunum og kasta sandi á erfiðustu staðina. Guðmundur segir mikla hjálp vera af því þegar fólk sandar að ruslatunnum, en íbúar geta fengið sand og salt til eigin nota á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar.

Á þessum árstíma fellur til meira sorp en venjulega og það hægir einnig á sorphirðunni. Mikilvægt er að yfirfylla ekki tunnurnar heldur ganga frá umframsorpi í sérstaka poka til að flýta fyrir. Þar sem sorphirðan er á eftir áætlun taka starfsmenn umframsorp sem sett hefur verið í sorppoka.  Alla jafna þurfa íbúar að setja sorp sem ekki rúmast í tunnur í  sérmerkta poka sem bera sorphirðugjald, en þeir eru seldir á bensínstöðvum N1 og í þjónustuveri borgarinnar í Borgartúni.  Flokkuðum pappír, pappa og plasti má einnig skila á grenndarstöðvar og þannig draga úr sorpi sem annars færi í heimilistunnuna. 

 

Tengt efni:  Sorphirðudagatal Reykjavíkur