Fab Lab í Eddufelli

Framkvæmdir Atvinnumál

""

Samningur um Fab Lab smiðju sem starfrækt verður í Eddufelli 2 var undirritaður í dag, föstudaginn 19. júlí. Fab Lab smiðjan er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Nýsköpunarmiðstöðvar og Fjölbrautaskólans í Breiðholti.  Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, Þorsteinn Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólastjóri FB undirrituðu samninginn í húsnæðinu sem hýsa mun Fab Lab Reykjavík.

Borgarráð samþykkti samstarfssamninginn í síðustu viku. Markmiðin með Fab Lab eru að auka þekkingu skólafólks og almennings á stafrænum framleiðsluaðferðum sem koma til móts við mjög ólíkar þarfir og áhugasvið einstaklinga.  Verkefninu er m.a. ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum.

Gert er ráð fyrir að Fab Lab muni opna í október samkvæmt tímaáætlun en gera  þarf húsnæðið upp og kaupa tækjakost fyrir verkefnið. Áætlaður kostnaður við verkefnið er  71.5 m.kr.

Nýsköpunarmiðstöð mun hafa umsjón með verkefninu, daglegum rekstri Fab Lab og sjá um þjálfun kennara FB sem kenna munu áfanga sína í Fab Lab Reykjavík sem er hluti samstarfsnets Fab Lab smiðja á Íslandi.  Fab Lab Reykjavík tengist jafnframt alþjóðaneti Fab Lab smiðja.