Í dag verður opnað fyrir bílaumferð af Frakkastíg og niður Hverfisgötu. Á þeim kafla sem bílaumferð er leyfð eru góðar gönguleiðir beggja vegna götunnar.
Óhætt er að segja að aðstæður vegfarenda á Hverfisgötu batni dag frá degi. Gangandi vegfarendur komast greiðlega alla götuna og einnig eru leiðir greiðar í bílastæðahús, bæði Traðarkot og Vitatorg.
Öll gatnamót á Hverfisgötu eru nú opin fyrir bílaumferð og það er aðeins á kaflanum frá Vitastíg niður að Frakkastíg sem eingöngu er opið fyrir gangandi umferð.
Endanlegum frágangi á gatnamótum Frakkastígs og Hverfisgötu lýkur í janúar.
Tengd frétt: Aðgengi batnar á Hverfisgötu