Engan pappír í gráar og grænar tunnur

Umhverfi

""

Pappír er ekki rusl og því er ekki lengur heimilt að henda honum í  gráar eða grænar tunnur Reykjavíkurborgar. Nýr áfangi í grænni framtíð borgarinnar felst í því að slíkar tunnur eru ekki tæmdar ef pappír eða pappi er í þeim.

Starfsfólk sorphirðu borgarinnar hefur undanfarið minnt íbúa á, þar sem það á við, að enginn endurvinnanlegur pappír eða pappi má fara í gráar og grænar tunnur. Það er gert með því að setja áminningarmiða á gráar og grænar tunnur sem augljóslega innihalda pappír.

Eftir 10. október verða slíkar tunnur sem innihalda pappír eða pappa ekki tæmdar og þarf viðkomandi að fjarlægja allan pappír úr henni áður en næsta losun getur átt sér stað.

Ef þörf er á að losa gráu tunnuna fyrir þann tíma eru þrjár leiðir færar:

  • Fara með úrganginn úr tunnunni á næstu endurvinnslustöð
  • Panta aukalosun í síma 411 1111 eða á sorphirda@reykjavik.is sem þarf að greiða fyrir
  • Losa sorpið úr tunnunni í poka sem eru seldir á N1 stöðvum og í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar. Pokarnir eru síðan fjarlægðir við næstu sorplosun.



Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði segist vera ánægð með viðtökur Reykvíkinga gagnvart flokkun og endurvinnslu. Fjölmörg heimili hafa skilað gráum tunnum sem kosta er 18.600  þúsund krónur á ári og fengið bláa tunnu í staðinn sem kostar 6.500 krónur. “Það er því hagkvæmt að flokka auk þess sem það hefur umhverfislegan ávinning,” segir Eygerður og bætir því við að pappír sé auðlind sem hægt er að nýta til ýmissa hluta ef hann er flokkaður frá og skilað til endurvinnslu.

Eygerður segir fleira mega fara í bláu tunnuna en margir gera sér grein fyrir en í hana fer t.d. morgunkornskassar, eggjabakkar, fernur, ljósritunarpappír, dagblöð og pítsukassar.

Reykvíkingar fá upplýsingar sendar með Fréttatímanum á morgun 27. september um að gráar og grænar tunnur sem innihalda pappír eða pappa verði ekki tæmdar eftir 10. október og ráð um hvernig bregðast megi við.

Undantekningin er að ef pappír er mengaður af matarleifum, blautur eða ekki hægt að losa hann frá öðru efni, þá er heldur ekki hægt að endurvinna hann og má aðeins slíkur ónýtur pappír fara í gráar og grænar tunnur Reykjavíkurborgar.

Heimili sem ekki eru með bláa tunnu eða aðrar endurvinnslutunnur stendur til boða fara með allt sem er úr pappír og pappa  á endurvinnslustöðvar Sorpu eða í grenndargáma sem eru víðs vegar um alla borg.

Það eru því margar leiðir sem til greina koma við að skila pappírsefni á réttan stað þó að ekki sé leyfilegt að henda því í gráar eða grænar tunnur lengur.