Ljósmyndasýningin Eldur - Ís verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun 12. janúar. Einar Ólason er ljósmyndari og hefur langa reynslu að baki í ljósmyndun. Þetta er hans fyrsta einkasýning og er yfirskriftin Eldur – Ís en viðfangsefnið er háhitasvæði Íslands, sýnt frá óvenjulegu sjónarhorni. Opnun sýningarinnar er klukkan 15.00 á morgun og stendur hún til 20. janúar nk.