Einbúinn fluttur í samstarfi skólahljómsveitar kórs og bekkjar

Skóli og frístund Menning og listir

""

Skemmtilegir tónleikar voru í ráðhúsinu á uppstigningardag þegar Skólahljómsveit Austurbæjar, skólakór Vogaskóla og nemendur í 6. bekk skólans fluttu verkið Einbúann. 

Skólahljómsveit Austurbæjar fékk styrk frá skóla- og frístundaráði til þessa verkefnis og var Össur Geirsson fenginn til að útsetja 8 lög eftir Magnús Eiríksson fyrir lúðrasveit og kór. Kór Vogaskóla undir stjórn Ágústu Jónsdóttur og  B – sveit skólahljómsveitarinnar sundir stjórn Vilborgar Jónsdótturr fluttu þessi lög á tónleikum. Nemendur í 6. bekk í Vogaskóla sem Margrét Erla Guðmundsdóttir hefur umsjón með vann sérstaklega með texta þessara laga og útbjó margs konar verkefni sem ýmist voru lesin upp undir flutningnum eða birtust á tjaldi undir tónlistinni. Miklar æfingar hafa staðið yfir á undanförnum vikum vegna tónleikanna og hafa krakkarnir lært að spila og syngja sving og blús.

Einbúinn verður fluttur á fernum tónleikum. Þeir síðustu verða 14. maí í Langholtsskóla.  

Búið er að hafa mikið fyrir því að læra að spila swing og blús, lög sem gætu verið bönnuð innan átján. Og nú er komið að því að flytja verkefnið. Það verða fernir tónleikar og 3 þeirra á skólatíma.