Efnt til samkeppni um framtíðarskipulag háskólasvæðisins

Skipulagsmál Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands hyggjast standa saman að samkeppni um framtíðarskipulag háskólasvæðisins. Jón Gnarr borgarstjóri og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu viljayfirlýsingu þar að lútandi í dag. Stefnt er að því að samkeppninni ljúki síðar á árinu og að í framhaldinu verði gert rammaskipulag af háskólasvæðinu sem verður hluti að staðfestu aðalskipulagi borgarinnar.

Meginmarkmið samkeppninnar er að fá fram spennandi hugmyndir um framtíðarnýtingu og skipulag háskólasvæðis Háskóla Íslands. Samkvæmt viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að samkeppnin byggist á markmiðum borgarinnar, sem koma fram í drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjavíkur, um græna, þétta og fallega borg.

Í samkeppninni er jafnframt gert ráð fyrir að tekið verði mið af stefnumótun borgarinnar og Háskóla Íslands á sviði umhverfis-, auðlinda- og samgöngumála og einnig haft til hliðsjónar markmið Háskóla Íslands og Norræna hússins um friðland í Vatnsmýri sem náttúruperlu í borg. Þá á að gera ráð fyrir allt að 400 nýjum stúdentaíbúðum á háskólasvæðinu og bættri nýtingu vestan Suðurgötu í samræmi við aldarafmælisyfirlýsingu Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar.

Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands mun vinna forsögn vegna samkeppninnar og mun sjö manna dómnefnd byggja samkeppnislýsingu á henni. Samkeppnin verður skipulögð í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og unnið verður eftir samkeppnisreglum félagsins.

Gert er ráð fyrir niðurstöðu dómnefndar 1. nóvember næstkomandi.