Efla samstarf um nám og rannsóknir í velferðarmálum

Velferð

""

Velferðarsvið Reykjavíkur og Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um að efla samstarf og rannsóknir í velferðarmálum. Með samningnum sameina félagsráðgjafardeild HÍ og Velferðarsviðið krafta sína, sérþekkingu og kunnáttu og stuðla þar með að framþróun og þekkingarmiðlun í velferðarþjónustu.

Félagsráðgjafardeild HÍ getur samkvæmt samningnum leitað til félagsráðgjafa velferðarsviðs um að veita nemendum í starfsþjálfun og er stefnt að því að sviðið taki á móti allt að 20 nemum á hverju starfsþjálfunartímabili. Einnig er kveðið á um aðstöðu fyrir rannsóknatengt nám undir yfirumsjón kennara við Háskóla Íslands en í samstarfi við starfsmenn Velferðarsviðs.



Velferðarsvið getur nýtt sér vinnuframlag nemenda/kennara og niðurstöður rannsóknarvinnunnar samkvæmt sérstöku samkomulagi hverju sinni. Þá munu nemendur Félagsráðgjafardeildar, sem velja lokaverkefni er tengjast velferðarsviði Reykjavíkurborgar, eiga kost á aðstoð starfsmanna við öflun og úrvinnslu gagna í vörslu Velferðarsviðs.



Einnig er gert ráð fyrir að forseti Félagsvísindasviðs geti boðið starfsmönnum velferðarsviðs borgarinnar að gegna akademísku gestastarfi við HÍ og samstarfi um stefnumótun um vísindi og rannsóknastarf. Sérstakir samningar verða  gerðir um einstök rannsóknaverkefni sem ákveðið verður að ráðast í.



Fjögurra manna samstarfsnefnd Félagsráðgjafardeildar og velferðarsviðs mun hafa umsjón með samningnum.