Edda Heiðrún og Tom Yendell sýna í Ráðhúsinu

Menning og listir

""

Myndlistarsýning Eddu Heiðrúnar Backman og Tom Yendell stendur yfir frá 13. til 28. júlí í gönguásnum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Edda og Tom eru félagar í alþjóðlegum samtökum: The Mouth and Foot Painting Artists (MFPA). Sýningin verður opnuð kl 14 laugardaginn 13. júlí.  Tom Yendell  heldur fyrirlestur kl 14. sunnudaginn 14. júlí í Tjarnarsal og þá munu þau bæði sýna myndlistartækni sína.

MFPA eru alþjóðleg samtök í eigu listamannanna sjálfra. Í dag eru meðlimir um 800 listamenn frá 76 löndum. Allir eiga það sameiginlegt að mála annað hvort með pensil í munninum eða á milli tána. Til að halda uppi gæðastaðli samtakanna verða listamenn sem sækja um aðild að hafa náð listrænni færni sem faghópur metur nægilega mikla til inngöngu í samtökin. Þau skipuleggja alþjóðleg þing þar sem félagsmenn hittast, ræða um verk sín og vinna saman í hópum. Félagar fá góð ráð og faglegan stuðning frá samtökunum til að þeir taki framförum í list sinni og geti orðið fullgildir listamenn og unnið fyrir sér með sölu á verkum sínum.