Degi íslenska táknmálsins var fagnað í fyrsta sinn á Íslandi í dag mánudaginn 11. febrúar 2013. Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, heimsótti af því tilefni leikskólann Sólborg þar sem börnin læra táknmál og Hlíðaskóla þar sem er starfrækt táknmálssvið.
Ráðherra hitti heyrnarlaus og hreyrnarskert börn og börnum sem tengjast táknmáli ásamt starfsfólki í svokallaðri döffstund,en þar er bara talað táknmál. Það vakti athygli hvað börnin voru einbeitt í leik sínum og létu gestina lítið trufla sig.
Menntamálaráðherra sótti einnig táknmálssvið Hlíðaskóla heim og kynnti sér táknmálskennslu skólans. Sjá frétt um dag íslenska táknmálsins á heimasíðu skólans.
Eftir hádegið var haldið málþing í HÍ um málumhverfi heyrnarlausra. Við opnun málþingsins sungu börn frá Sólborg tvö lög. Meira um málþingið.