Comeniusarverkefni um lýðræði og borgaravitund

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og skólayfirvöld í Flórens á Ítalíu starfa saman að verkefni um lýðræði og borgaravitund sem styrkt er af Comeniusaráætlun Evrópusambandsins. Verkefninu lýkur vorið 2014.

Þátttakendur í verkefninu hér á landi eru Réttarholtsskóli, Hagaskóli, Laugalækjarskóli og frístundamiðstöðvarnar Frostaskjól og Kampur.

Markmið verkefnisins er að efla lýðræðisvitund unglinga með formlegri og óformlegri kennslu um lýðræði og sjálfbærni.  Megin forsendan er að styrkja og auka hæfni kennara og frístundaráðgjafa  til að vinna með lýðræði og málefni sem því tengjast. Kennarar og frístundaráðgjafar í Flórens og Reykjavík munu vinna skipulega að samvinnu og þróa aðferðir til að vinna með ungu fólki með áherslu á tölvuþekkingu, fjölmiðlun og aðra virka miðlun.

Verkefnið er á heimasíðu þar sem ungt fólk, kennarar og frístundaráðgjafar deila efni, hugleiðingum og öðru tengt viðfangsefninu. Slóðin er www.dn4d.eu