Leikskólinn Nóaborg er um þessar mundir að ljúka tveggja ára Comeniusarverkefni sem ber heitið „The four elements“. Auk Íslands taka leik- og grunnskólar frá átta öðrum Evrópuþjóðum þátt í verkefninu; Svíþjóð, Englandi, Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Grikklandi.
Mörg skemmtileg verkefni hafa verið unnin þessa tvo vetur og hafa fundir verið haldnir víða um Evrópu og hefur góður vinskapur myndast á milli kennaranna.
Lokafundurinn er haldinn þessa dagana á Íslandi og í dag hitti hópurinn m.a. Oddnýju Sturludóttur, formann skóla- og frístundaráðs í ráðhúsinu þar sem gestirnir skoðuðu sig um. Oddný var með kynningu á stefnu borgarinnar í hinum ýmsu málaflokkum þótt skólamál hafi skipað þar stóran sess.
Á þessum lokafundi verður unnin skýrsla um verkefnið en gestirnir munu einnig gefa sér tíma til að skoða sig um og fara í hvalaskoðun.