Viltu skerpa á tungumálakunnáttu þinni, finna einhvern til að spjalla við á þínu móðurmáli eða miðla íslenskukunnáttu og kynnast um leið nýjum tungumála- og menningarheimum? Borgarbókasafn býður gestum að hitta aðra heimsborgara á tungumálatorgi aðalsafns, Tryggvagötu 15, á mánudögum kl. 17-18. Café Lingua er lifandi vettvangur fyrir orð, spjall og samskipti. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Við hefjum Café Lingua að nýju mánudaginn 21. janúar eftir langt frí. Þar spjöllum við saman, æfum tungumál, hittum fólk og höfum það skemmtilegt saman. Einnig stendur öllum til boða að koma með tónlist frá hinum ýmsum tungumálaheimum. Endilega bjóðið vinum og ættingjum. Það er heitt á könnunni og notaleg stemmning í Café Lingua í aðalsafni.