Byrgjum brunninn

Velferð Skóli og frístund

""

Byrgjum brunninn eða uppeldi sem forvörn er yfirskrift nóvemberfundar Náum áttum sem haldin verður á Grand hótel miðvikudaginn 27. nóvember kl. 08.15-10.00. Fundurinn fjallar um uppeldi sem forvörn og mikilvægi þess að grípa snemma inní vandamál sem annars geta leitt til skaða. 

Þar munu halda erindi;

  • Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor á Menntavísindasviði HÍ, sem fjallar um uppeldi sem forvörn.
  • Margrét Sigmarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri PMTO (foreldrafærni) á Íslandi fjallar um PMT-Oregon aðferðina við að styrkja foreldra sem uppalendur.
  • Lone Jensen, þroskaþjálfi hjá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar fjallar um námskeiðið; uppeldi sem virkar, færni til framtíðar.

Fundarstjóri verður Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu og mun hún stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt.  Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 1800 en innifalið í því er morgunverður.