Brotin sjálfsmynd barna og unglinga

Skóli og frístund Mannlíf

""

Náum áttum, forvarnahópurinn, heldur morgunverðarfund á Grand hótel miðvikudaginn 15. maí nk. um brotna sjálfsmynd barna og unglinga, áhrifaþætti úr fjölmiðlum og hvernig styrkja má jákvæða sjálfsmynd.  Fyrirlesarar eru Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur frá Foreldrahúsi, fjallar um sjálfsstyrkingarnámskeið í Foreldrahúsi, Vigdís Jóhannesdóttir, ráðgjafi hjá PIPAR/TPWA auglýsingastofu, fjallar um áhrifamátt auglýsinga og Katrín Anna Guðmundsdóttir, jafnréttishönnuður, flytur erindi sem hún kallar Hvernig væri að breyta þjóðfélaginu?

Fundurinn stendur frá kl. 8.15 - 10.00 og fundarstjóri er Margrét Júlía Rafnsdóttir. Skráningar eru á heimasíðunni www.naumattum.is/ og í þátttökugjaldinu, 1800 krónum er morgunverður innifalinn. 

Þetta er 7. fræslufundur Náum áttum í vetur og jafnframt sá síðasti á þessu vetrarmisseri.