Breyting á reglum um leikskólaþjónustu 1. maí
1. maí tekur gildi breyting á reglum um leikskólaþjónustu og nær hún til afsláttar af námsgjaldi til einstæðra foreldra sem eru að skilja. Breytingin hljóðar svo:
Foreldri með skráninguna „Hjón ekki í samvistum“ í þjóðskrá getur fengið afslátt af námsgjaldi til einstæðra foreldra þegar um undanfara skilnaðar er að ræða. Skila skal inn staðfestingu frá sýslumanni um að óskað hafi verið eftir leyfi til skilnaðar. Skóla- og frístundasvið getur óskað eftir frekari staðfestingu frá foreldri á því að um undanfara skilnaðar sé að ræða, s.s. að það undirriti staðfestingu þess efnis. Afsláttur er ekki veittur sé lögheimili foreldra á sama stað. Afsláttur er veittur frá þeim degi sem framangreindum skilyrðum er fullnægt, að öðrum skilyrðum afsláttar til einstæðra uppfylltum, þ.m.t. að endurnýja skuli umsókn árlega fyrir 15. ágúst og afhenda leikskólastjóra í viðkomandi leikskóla. Afsláttur er ekki veittur til foreldris með skráninguna „Hjón ekki í samvistum“ í þjóðskrá, þegar um undanfara skilnaðar er að ræða, í lengri tíma en tvö ár. Afsláttur sem veittur er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er endurkræfur samkvæmt almennum reglum kröfuréttar og verða hlutaðeigandi krafðir um mismuninn.