Fundur um hverfisskipulag var haldinn í Gerðubergi í Breiðholti í gær og mættu rúmlega 50 manns. Á fundinum kom fram að Breiðhyltingar eru almennt ánægðir með hverfið sitt og töldu fjölbreytileikann vera einn af einkennum hverfisins. Gestir tóku þátt í vinnuhópum þar sem starfsmaður frá skipulagssviði borgarinnar var til staðar og skoðuð voru kort og rætt um úrbætur.
Hverfisskipulagið felst m.a. í því að rækta staðaranda hverfanna og þróa þau í átt að sjálfbærum einingum, með það að markmiði að bæta heilsu, öryggi og vellíðan íbúa. Fundirnir verða haldnir núna í september og þar gefst íbúum tækifæri á að hafa áhrif strax í upphafi hverfisskipulagsvinnunnar.
Á fundunum er m.a. leitast við að svara spurningum eins og: Hvar væri best að hafa verslun og þjónustu innan hverfisins? Hvar eru góð opin græn svæði og hver má bæta? Hvar er möguleiki á þéttingu byggðar? Hvernig er hægt að bæta göngu- og hjólaleiðir barna í skóla eða fullorðinna í vinnu? Hvernig er hægt að fá börn til að eika sér úti og hreyfa sig meira? Hvernig er hægt að efla staðaranda? Í hverfisskipulagi verða settar almennar reglur um yfirbragð, þróun og varðveislu byggðarinnar.
Margt brann á íbúum í Breiðholti þar á meðal:
- Betri tengingar fyrir hjólandi og gangandi innan hverfis og eins inn og út úr því Að tengja Kópavog og Breiðholtið betur saman
- Lýsingu víða ábótavant.
- Hugmyndir um að nýta hluta grænu svæðanna fyrir matjurtargarða
- Betra eftirlit með skíðabrekkunni í hverfinu – vantar starfsmann á svæðið sem þýðir að foreldrar þora ekki að senda börn sín í brekkuna
- Fjölga strætisvagnabiðskýlum í Breiðholti
- Vangaveltur voru um hvort hægt er að tengja Stekkjabakkann beint við Höfðabakkann
Öflugt samráð við íbúa og hagsmunaaðila verður einkenni á hverfisskipulaginu og Reykjavíkurborg hefur þegar ráðið ráðgjafateymi til að vinna fyrsta áfanga hverfisskipulags fyrir átta af tíu borgarhlutum í Reykjavík. Samráðið við íbúa verður á netinu, úti í hverfunum og á íbúa- og hagsmunaaðilafundum.
Næsti fundur verður haldinn í dag í Fylkishöllinni í Árbæ, og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í að móta hverfið. Börn eru velkomin.