Breiðholtsskóli í öðru sæti í Skólahreysti

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Lið Breiðholtsskóla lenti í öðru sæti í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Laugalækjarskóli lenti í fjórða sætinu, en þessir tveir reykvísku grunnskólar voru meðal tólf skóla af landinu öllu sem kepptu til úrslita. 

Breiðholtsskólaliðið, sem skipað var þeim Thelmu, Láru, Pétri og Halldóri, stóð sig frábærlega í lokakeppninni og fékk það góða hvatningu frá bleikklæddum skólafélögum á áhorfendapöllunum. Laugalækjarskóli og lið þeirra Diljá, Ernir, Hildur og Mundi fagna líka sigri, en skólinn var að taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. 

Alls kepptu 12 skólar til úrslita og varð Holtaskóli í 1. sæti þriðja árið í röð en Lindaskóli í 3. sæti. 

Sjá www.skolahreysti.is.