Breiðholtsdagar eru hafnir

Velferð Mannlíf

""

Breiðholtsdagar hófust í gær - sjá dagskrá með því að smella hér - en hátíðin er árlegur viðburður í þessu hverfi sem er eitt það stærsta í borginni. Fyrsti viðburðurinn var svokallað Breiðholtsþing foreldra sem haldið var í gær, en þar var fjallað um málefni barna, menntun, frístundir og framtíð. Í dag hefst síðan hin eiginlega dagskrá þar sem nóg verður um að vera í hverfinu alveg fram á sunnudag. 

Breiðholtsdagar hófust í gær - sjá dagskrá með því að smella hér - en hátíðin er árlegur viðburður í þessu hverfi sem er eitt það stærsta í borginni. Fyrsti viðburðurinn var svokallað Breiðholtsþing foreldra sem haldið var í gær, en þar var fjallað um málefni barna, menntun, frístundir og framtíð. Í dag hefst síðan hin eiginlega dagskrá þar sem nóg verður um að vera í hverfinu alveg fram á sunnudag. Fókusinn í ár er á viðburði í Gerðubergi og nágrenni, en meðal þess sem boðið er upp á í dag er opið hús hjá Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi þar sem gestir og gangandi fá tækifæri til að grípa í hljóðfæri, Zumbakennsla verður í Breiðholtslaug og opin hús í leikskólum svo fátt eitt sé nefnt.

Á morgun, föstudag, hefst síðan nýstárlegur dagskrárliður sem er beint vefstreymi úr Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á vefnum netsamfelag.is. Alla dagskrá Breiðholtsdaga má sjá með því að smella hér.

Við hvetjum alla Breiðhyltinga og nærsveitunga til að taka þátt í Breiðholtsdögum!