Í dag var margbreytileikanum fagnað í leikskólanum Laufskálum. Undir yfirskriftinni Þjóðarbrotin okkar komu börnin með ýmis sýnishorn af sinni heimamenningu í leikskólann. Þau tóku með sér myndir, bækur, tónlist, mat og fatnað sem einkennir þeirra þjóðarbrot og menningu.
Meðal þess sem börnin gátu skoðað og rætt um voru munir frá Afríkuríkinu Gana, Póllandi, Íslandi, Palestínu og Marokkó. Í hádeginu var svo boðið upp á bragðsterkan mat frá Marokkó, sem faðir eins barnsins í skólanum eldaði af mikilli snilld.
Óhætt er að segja að sjóndeildarhringurinn hafi stækkað fyrir margan á þessum skemmtilega degi í Laufskálum. Honum lauk með fjörugu harmónikkuballi en félagar í sambandi íslenskra harmónikku-unnenda kom í leikskólann og spilaði fyrir börnin.