Borgin í sumarbúning

Um helgina verður margt um að vera í miðborginni. Sumargötur verða formlega opnaðar, verslunareigendur bjóða upp á langan laugardag og hátíð hafsins verður haldin þessa helgi í tilefni sjómannadagsins.  Það eru því margar ástæður til að taka þátt í lifandi borg og boðið er uppá menningu og listir á hverju götuhorni.

Laugavegurinn verður göngugata frá Vatnsstíg og Skólavörðustígur frá Bergstaðastræti í sumar. Kvosin mun að sama skapi vera mestmegnis tileinkuð gangandi og hjólandi vegfarendum líkt og undanfarin sumur.

Ný hjólahlið í sólblómagulum og tyggjóbleikum lit verða sett upp við Sumargötur en þessir tveir litir urðu hlutskarpastir í  litasamkeppni á Facebook-síðu Reykjavíkurborgar.

Reykjavíkurborg hvetur alla til að ganga vel um miðborgina og bjóða gesti hennar velkomna með því að  skapa notalegt viðmót og bæta með  því ímynd borgarinnar.  

Reykjavíkurborg ætlar af þessu tilefni að útvega falleg sumarblóm og ef rekstraraðilar setja upp blómaker geta þeir pantað blómin hjá midborgin@reykjavik.is sér að kostnaðarlausu.

Allir sem leggja leið sína í miðborgina í sumar eru beðnir um að sýna ábyrgð og ganga eins vel um og kostur er. Það er lítið viðvik að ganga að næstu tunnu með rusl í samanburði við kostnað skattgreiðenda  við að hreinsa óþarfa sóðaskap í borginni. Hér skiptir framlag hvers og eins öllu máli. Munum gamla slagorðið að götur eru ekki ruslafötur.

Nánar um uppákomur um helgina á Miðborgin okkar og Hátíð hafsins.