Borgin hirðir ekki jólatré

Umhverfi Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg mun ekki hirða jólatré frá borgarbúum í ár eins og nokkur undanfarin ár. Trén eru hins vegar kjörin til endurvinnslu og eru borgarbúar hvattir til að skila þeim á endurvinnslustöðvar Sorpu sem tekur við þeim endurgjaldslaust. Einnig er kjörið að búta þau niður í safnhauga í einkagörðum til að búa til moltu. Þá er einnig hægt að koma þeim á þrettándabrennur næstkomandi sunnudag.

Sorphirða Reykjavíkur, Gámaþjónustan og Íslenska gámafélagið hirða ekki jólatré í ár. Undanfarin ár hafa íþróttafélög boðið borgarbúum að hirða jólatré að loknum hátíðum gegn gjaldi. Í ár munu ekki mörg íþróttafélög bjóða upp á þjónustuna en staðfest er að íþróttafélagið Valur mun safna jólatrjám auk þess sem félagið safnar dósum og flöskum á sama tíma og trén eru tekin.

Misjafnt er hvort íþróttafélög í Reykjavík bjóði borgarbúum upp á að hirða jólatré að hátíðunum loknum.  Best er að leita til íþróttafélaga í sínu hverfi og kynna sér þjónustuna en einhver þeirra safna líka dósum og flöskum á sama tíma og trén eru tekin.Starfsemi og opnunartíma Sorpu er hægt að kynna sér á vefnum þeirra, www.sorpa.is