Starfsmenn Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar eru byrjaðir að setja upp jólalýsinguna í borginni, en kveikt verður á henni seinni hluta mánaðarins.
Jólalýsingin í ár verður með hefðbundnu sniði. Jólabjöllur eru hengdar yfir götur í miðborginni ásamt öðru skrauti, jólatré verða sett upp á torgum víða um hverfin, jólaskraut fest á ljósastaura og lýsing sett í götutré. „Við ákváðum að auka lýsingu í völdum trjám á Laugaveginum, en fækka staðsetningum og gaman er að segja frá því að allar seríurnar eru með LED perum sem nýta orkuna betur,“ segir Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Einnig má gera ráð fyrir að jólavættirnar sem spruttu fram ljóslifandi á nokkrum veggjum borgarinnar í fyrra muni birtast á nýja leik.
„Lýsing á Austurvelli hefur verið endurbætt og fær hún á sig jólabrag,“ segir Hildur leyndardómsfull. Oslóartréð verður að sjálfsögðu á sínum stað og tendrað verður á því fyrsta sunnudag í aðventu sem nú ber upp á 1. desember.
„Það eru allir glaðir þegar okkar menn koma að setja upp jólalýsinguna og sumir veitingamenn hafa meira segja komið færandi hendi með rjúkandi kaffi handa þeim,“ segir Hildur.