Borgarsýn komin út

Umhverfi Skipulagsmál

""

Þriðja tölublað ársins 2013 af Borgarsýn er komið út en blaðið kom fyrst út um haustið 2011. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar gefur kynningarritið út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi skipulagsmála hverju sinni.

Í þetta sinn fjallar Borgarsýn því um hið stærsta til hins smæsta í umhverfi okkar. Við fjöllum um endurskoðun aðalskipulags, undirbúningsvinnu sem snýr að hverfisskipulagi og uppbyggingaráform í miðborg sem munu bæta bæði ásýnd og borgarbrag. Við stiklum líka á stóru hvað varðar Reykjavík í tölum en þar kemur m.a. fram að Reykvíkingum hefur fjölgað um 20.000 frá árinu 1990 og að það er 1,5 bíll á hvert heimili í borginni, sem er töluvert meira en í nágrannaborgum okkar.

Nýafstaðin er sýning í ráðhúsi Reykjavíkur um uppbyggingarmöguleika og uppbyggingaráform í Reykjavík á næstunni. Þar mátti sjá að Reykjavík er í stöðugri mótun enda ung borg að árum og tækifæri má finna víðsvegar. Þegar byggja á til framtíðar er vönduð stefnumótun lykillinn að árangri og þess vegna er mikilvægum áfanga náð þegar endurskoðað aðalskipulag hefur verið kynnt.

Samgönguvika fór fram í september og hófst með glæsibrag þegar nýja hjóla- og göngubrúin yfir Elliðaárósa var opnuð. Að lokinni hinni árlegu hjólaráðstefnu, Hjólum til framtíðar, voru veittar samgönguviðurkenningar sem að þessu sinni féllu í hlut Landsbankans og Hugsmiðjunnar. Í dagslok var svo bílakjallari ráðhússins settur í nýjan búning en þar var haldið hjólaskautadiskó sem átti að vekja athygli á því hversu mikið rými fer undir einkabílinn, en væri hægt að nýta til annarra hluta.

Ekki má gleyma að minnast á að bláa tunnan hefur fest sig í sessi og sífellt fleiri borgarbúar flokka nú sorpið sitt og gera sér grein fyrir því að pappír er ekki rusl enda hefur bláum tunnum í borginni fjölgað um meira en helming síðan um síðustu áramót.

Skipulagsyfirvöld vonast til þess að Borgarsýn upplýsi borgarbúa um áherslur varðandi þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum og er einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson, Halldóra Hrólfsdóttir og Gunnar Hersveinn.

Borgarsýn - nýtt tölublað.