Borgarsýn - fyrsta tölublað ársins 2013

Fyrsta tölublað ársins 2013 af Borgarsýn er komið út og er um að ræða það fimmta í heildina en Borgarsýn kom fyrst út í nóvember 2011. Það er umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sem gefur kynningarritið út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi skipulagsmála hverju sinni.



Skoða Borgarsýn 5. tbl 2013 (PDF).



Í þessu tölublaði af Borgarsýn er bæði litið aðeins í baksýnisspegilinn og svo fram á veginn. Sagt er frá Jólaborginni Reykjavík, sem hefur sjaldan eða aldrei verið eins falleg og viðburðarík og síðastliðin jól, sem er ekki síst að þakka samstarfsaðilum borgarinnar sem lögðust á eitt að skapa verðuga jólaumgjörð. Fjallað er um verkefnið „Torg í biðstöðu” sem á dögunum fékk hönnunarverðlaun Grapevine árið 2012 en í umsögn dómnefndar kemur fram að verkefnið sýni vel hvernig megi lífga upp á nærumhverfi borgarinnar með frumlegum og útsjónarsömum lausnum. Ítarlega er fjallað um úrslit úr nokkrum nýlegum samkeppnum sem Framkvæmdasýsla Ríksins hélt utan um fyrir hönd hins opinbera. Verðlaun í þeim öllum voru afhent á árinu 2012. Um var að ræða samkeppni um Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, samkeppni um nýtt fangelsi á Hólmsheiði og samkeppni um Menntaskólann við Sund.



Í Borgarsýn er fjallað um nýja tillögu að deiliskipulagi fyrir hinn svokallaða Landsímareit í Kvosinni, en tillagan felur í meginatriðum í sér að þróa uppbyggingu á reitnum með tilliti til þeirrar byggðar sem fyrir er á svæðinu. Haldið er í gömlu húsinn við Vallarstræti og Aðalstræti en á milli þeirra verður komið fyrir fíngerðum nýbyggingum sem styrkja þá starfsemi sem snýr að Ingólfstorgi. Einnig er gert ráð fyrir nýbyggingu við Kirkjustræti. Landsímareiturinn er í hjarta miðborgarinnar og hafa borgaryfirvöld ásamt verðlaunahöfundum tillögunnar, ASK arkitekta, lagt mikla áherslu á að vanda sérstaklega til verka.



Árið 2013 verður viðburðarríkt skipulagsár. Nýtt aðalskipulag sem nú er til umfjöllunar í borgarstjórn verður auglýst með formlegum hætti og vinna við hverfisskipulag fyrir öll hverfi borgarinnar með vistvænar áherslur í öndvegi er að fara stað. Verkefnið „Pappír er ekki rusl“ sem einnig er til umfjöllunar í þessu tölublaði er eitt gott dæmi um þær vistvænu áherslur sem settar verða í forgang við gerð hverfisskipulags.



Með reglulegri útgáfu kynningarrits um skipulagsmál vonast skipulagsyfirvöld til þess að borgarbúar verði betur upplýstir um þær áherslur sem uppi eru í þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum, en einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson og Valný Aðalsteinsdóttir.



Eldri eintök af Borgarsýn:

Skoða Borgarsýn 1. tbl. 2011.  

Skoða Borgarsýn 2. tbl. 2012.  

Skoða Borgarsýn 3. tbl 2012.  

Skoða Borgarsýn 4. tbl 2012.