Borgarstjórn samþykkti samhljóða í dag tillögur borgarstjóra um aðgerðir gegn kynbundnum launamun sem byggðar eru á áætlun aðgerðahóps um kynbundinn launamun.
Tillögurnar eru í ellefu liðum:
1. Í október og nóvember 2013 verði farið í fræðsluátak með stjórnendum er miði að því að efla stjórnendur og tryggja þekkingu þeirra og verklag hvað varðar launasetningu óháð kyni. Jafnframt verði lögð áhersla á að starfsfólk og stjórnendur borgarinnar líti á Reykjavíkurborg sem einn vinnustað. Skyldubundin fræðsla verði fyrir alla stjórnendur á tveggja ára fresti.
2. Í kjölfar fræðsluátaks verði stjórnendum falið að endurskoða fastlaunasamninga og aksturssamninga starfsfólks borgarinnar með það að leiðarljósi að leiðrétta kynbundinn launamun. Endurskoðun verði lokið fyrir 31. desember 2013. Að endurskoðun lokinni verði gerð úttekt sem mælir árangur aðgerðarinnar.
3. Ítarlegar tölfræðiskýrslur um launamál borgarinnar verði lagðar fyrir borgarráð og fagráð ársfjórðungslega.
4. Aðgengi að kyngreindum upplýsingum um launagreiðslur verði bætt. Launaáætlunarlíkani verði breytt þannig að unnt verði að birta kyngreindar upplýsingar um áætlaðan launakostnað áður en fjárhagsrömmum er úthlutað árlega.
5. Framkvæmd verði úttekt á launamun kynjanna hjá Reykjavíkurborg árlega. Úttekt verði strax gerð á grunni launagagna októbermánaðar 2013. Annað hvert ár verði úttektin unnin af utanaðkomandi fagaðila.
6. Innri endurskoðun verði falið að greina og leggja mat á launakerfi borgarinnar með áherslu á skýrslu- og upplýsingagjöf til stjórnenda.
7. Innri endurskoðun verði falið að gera úttekt á starfsmatskerfi borgarinnar.
8. Vinnu við að skrá menntun starfsmanna í launakefið verði sett í forgang.
9. Áhersla verði lögð á jafnvægi atvinnu-, félags-, og einkalífs og dregið markvisst úr yfirvinnu.
10. Innleiðing á kynhlutlausu viðbótarlaunakerfi verði tekin til skoðunar. Samhliða innleiðingu viðbótarlaunakerfis yrðu fastlaunasamningar afnumdir og markvisst dregið úr yfirvinnu starfsfólks borgarinnar. Slíkt kallar á endurhugsun á samsetningu launa og framleiðni starfa með það að markmiði að breyta samsetningu launa án þess að skerða heildarlaun.
11. Jafnlaunastaðall verði innleiddur hjá Reykjavíkurborg, undirbúningur hefjist fyrir 1. nóvember n.k.
Jafnframt er samþykkt að verja fjórum milljónum króna til verkefna sem framkvæmd verða í haust.
Deildarstjóra kjaradeildar og starfsmannastjóra Reykjavíkurborgar er ennfremur falið að fylgja eftir aðgerðaáætlun þeirri sem sett er fram í skýrslu aðgerðahóps um kynbundin launamun. Borgarráð mun fá ársfjórðungslega úttekt á framvindu aðgerðaáætlunarinnar.