Borgarstjórn fundar með bæjarstjórn Akureyrar í Hofi
Í dag, föstudaginn 8. febrúar kl. 16.00, verður haldinn sameiginlegur fundur borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Akureyrar. Fundurinn fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Markmið fundarins er að ræða sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna tveggja og efla kynni borgarfulltrúa Reykjavíkur og bæjarfulltrúa Akureyrar.
Í dag fara borgarfulltrúarnir m.a. í kynnisferð um Akureyri og skoða aðstöðuna á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, og Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar stýra fundinum sem verður opinn áhorfendum. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4.
Dagskrárliðir fundarins eru sem hér segir:
1. Samvinna Akureyrar og Reykjavíkur.
2. Samgöngumál.
3. Velferðarmál.
4. Fræðslu-, frístundar- og menningarmál.
Áætluð fundarlok eru um kl. 18.00.