Listasafn Reykjavíkur hefur beðið þjóðþekkta einstaklinga að velja sér uppáhaldsverkið sitt á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum. Viðkomandi er jafnframt beðinn um að segja gestum á sýningunni frá því hvað það er sem gerir verkið einstakt. Þetta verður gert á hverjum fimmtudegi kl. 12.15 meðan á sýningunni stendur eða til 20. maí.
Jón Gnarr borgarstjóri reið á vaðið á Kjarvalsstöðum í gær og valdi verkið Stúlkur við söltun eftir Gunnlaug Blöndal (án ártals). Fjöldi gesta var viðstaddur þegar borgarstjóri sagði frá verkinu. Í umsögn borgarstjóra um verkið á Kjarvalsstöðum í gær kom meðal annars þetta fram:
,,Ég valdi verkið Stúlkur við söltun því mér finnst það fallegt, bjart og áhugavert. Það er afslappað og alþýðlegt. Það segir ákveðna sögu um íslenska menningu og fyllir mig stolti og bjartsýni. Ég finn fyrir ákveðinni tengingu við það og mér finnst ég þekkja konurnar á myndinni. Ég var alin upp af svona konum,mamma mín var svona kona.“
Um verkið og listamanninn Gunnlaug Blöndal:
Gunnlaugur Blöndal (1893-1962) lærði í Osló og síðar í París þar sem hann markaði sér vissa sérstöðu meðal íslenskra listamanna. Á Parísarárunum naut hann mikillar velgengni og þá sérstaklega fyrir málverk af konum og draumkenndu landslagi í anda Parísarskólans (École de Paris). Verk eftir hann var valið á „Haustsýninguna” í París árið 1925 og hann var jafnframt valinn einn af fulltrúum franskrar nútímalistar til að sýna í Tokýó það sama ár. List Parísarskólans byggir á franskri hefð og einkenndist af léttleika, birtu og litanotkun þar sem liturinn var nýttur til að skapa massa. Verk Gunnlaugs sköpuðu honum sérstöðu en hann lagði áherslu á gegnsæja birtu og þétt form sem mótast af tónaspili litanna og undirstrika hörund kvenlíkamans.
Stúlkur við söltun eftir Gunnlaug Blöndal er án ártals en hann gerði verkið líklega á árunum 1935-1940 en á því tímabili vann hann fleiri myndir af síldarverkun. Líkt og aðrir samtímamenn Gunnlaugs á árunum eftir seinni heimstyrjöld málaði hann myndir af alþýðunni og vinnandi fólki. Stúlkur við söltun eftir Gunnlaug Blöndal (án ártals) var keypt í safn Listasafns Reykjavíkur árið 1958.
(Heimild: Úr Íslensku listasögunni)
Þann 21. febrúar mun Guðrún Ásmundsdóttir velja verk á sýningunni á Kjarvalsstöðum.