Borgarstjóri setur Hestadaga í Reykjavík

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði Hestadaga  í Reykjavík formlega með því að fara í útsýnisferð í hestakerru um borgina. Hestadagar eru nú haldnir í annað sinn en um er að ræða samvinnuverkefni Landssambands Hestamanna, Höfuðborgarstofu, og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu. Dagana 4. - 7. apríl  verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem hesturinn verður í aðalhlutverki.

Föstudaginn 5. apríl bjóða hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli gestum og gangandi í félögin sín. Valin hesthús verða opin fyrir áhugasama og hestateymingar verða í boði í reiðhöllum félaganna ásamt léttum veitingum.

Á laugardaginn 6. apríl og verður farin skrúðreið líkt og í fyrra og að þessu sinni tekinn hringur í miðbænum. Kl. 13.00 - 16.00 verður boðið upp á skemmtidagskrá í Húsdýragarðinum – teymt undir börnum, fræðsla um hestinn, heitjárning sýnd, byggingadómar. Hestar fléttaðir og fleira skemmtilegt.

Dagskrá Hestadaga í Reykjavik má nálgast á www.lhhestar.is.