Borgarstjóri á ráðstefnu í Karlsruhe

Jón Gnarr, borgarstjóri, er nú staddur í Þýskalandi Í kvöld mun hann flytja erindi á ráðstefnu um skipulagsmál eftir kreppu á ráðstefnu arkitekta og verkfræðinga við Tækniháskólann í Karsruhe (Karlsruhe Institute of Technology KIT). Erindi borgarstjóra fjallar um skipulagsmál í Reykjavík, nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar til 2030, samgöngur, lýðræðismál og fleira.



Ráðstefnan er haldin undir yfirskriftinni  New Babylon. Architecture and Urbanism After Crisis (Ný Babylon. Arkitektúr og borgarmenning eftir kreppu). Um ráðstefnuna segir m.a. „Alþjóðafjármálakreppan er orðin að borgarkreppu. Á ráðstefnunni mun verða rætt um ástæður hennar, viðbrögð og hugsanlegar lausnir á vandamálum varðandi þróun borgarskipulags og arkitektúrs. Hvar finnast breytingarnar fyrst og hvernig bregst samfélagið við krísunni? Hvað stöðu taka einstaklingar, stjórnsýslan og hönnuðir?”



Fyrirlesarar á ráðstefnunni auk borgarstjóra eru Charles Waldheim, John E. Irving, Isabel Concheiro, Dan Hill, Regina Bittner og Andres Lepik.