Borgarstjóri opnar árlega söfnun ABC barnahjálpar
Jón Gnarr borgarstjóri setti formlega af stað árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag. Þrjátíu og fimm nemendur úr 5. bekk Foldaskóla komu í Ráðhúsið og var þeim boðið upp í borgarstjórnarsalinn þar sem þau fengu veitingar og fræðslu um húsið og starf borgarstjórnar. Jón Gnarr heilsaði upp á börnin, hélt stutta ræðu og að því loknu afhenti hann börnunum fyrstu framlögin í söfnunina með því að setja pening í baukana sem þau voru með.
Söfnunin fer nú fram 16. árið í röð og í gegnum árin hafa íslensk börn safnað fé fyrir skólabyggingum, heimavistum, húsgögnum, námsbókum, skólamáltíðum og stuðningi við fátæk börn. Í ár verður safnað fyrir brýnustu nauðsynjum á heimavistum og skólum ABC m.a. skólabókum fyrir fátæk börn í Pakistan og byggingu heimavistar og skóla fyrir götubörn í Kenýa.
Söfnunin stendur til 28. apríl og eru landsmenn hvattir til að taka vel á móti börnunum. Nánari upplýsingar um söfnunina má nálgast á heimasíðu ABC barnahjálpar www.abcchildrensaid.org/is/