Leiðindaskjóða mun aðstoða borgarstjóra þegar jólamarkaður á Ingólfstorgi verður opnaður formlega kl. 13 laugardaginn 7. desember. Leiðindaskjóða mun safna leiðindum fólks í poka og endurvinna í eldhress og rokkuð jólalög.
Á Ingólfstorgi er risið jólaþorp með markaðshúsum og tjöldum. Handverksfólk, sælkerar og aðrir gleðigjafar verða á staðnum frá kl. 12 - 18. Á jólamarkaði um helgina verður meðal annars grafið ærkjöt frá Hundastapa í Borgarfirði, hangikjöt frá Bjarnastöðum í Öxarfirði, Svandís kandís, Urta Islandica, birkisafinn frá Hallormsstað. Sultur, krydd, te, sölt, síróp, rabarbarahófar, handgerður brjóstsykur, kryddlegin söl og margt fleira. Aðstandendur jólamarkaðar hvetja fólk til að mæta með bragðlauka sína í heimsókn yfir helgina. Hægt er að fylgjast með síbreytilegu framboði á viðburðarsíðu jólamarkaðarins á Facebook
Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi hefur stækkað frá fyrra ári. Nú um helgina verða 13 bjálkakofar með margvíslegt handverk og matarkyns til sölu. Næstu helgi bætast við bæði jólatrésala og veitingatjald sem selur rjúkandi heitt glögg og fleira. Síðustu fimm daga fyrir jól bætist síðan við stórt tald með 20-30 söluaðilum. Tjaldið verður skreytt með 30 jólatrjám og óteljandi seríum. Meðal söluaðila er kaffihúsið GÆS og allir helstu litlu matarframleiðendur á landinu.
Opið fram á kvöld
Jólamarkaðurinn opnar um hádegi og er ýmist opinn fram á kvöld eða langt fram á kvöld eftirtalda daga:
• Laugardaginn 7. des., kl. 12 til 18.
• Sunnudaginn 8. desember, kl. 12 til 18.
• Laugardaginn 14. desember, kl. 12 til 22.
• Sunnudaginn 15. des, frá 13 til 18.
• Fimmtudaginn 19. desember, kl. 12 til 22.
• Föstudaginn 20. desember, kl. 12 til 22.
• Laugardaginn 21. desember, kl. 12 til 22.
• Sunnudaginn 22. desember, kl. 12 til 22.
• Mánudaginn 23. desember, Þorláksmessa – kl. 12 – 23.