Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú í þriðja sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.
Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt.
Slíkur borgari gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi, eða einhver, sem hefur með ólaunuðu framlagi sínu, haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða gert Reykjavíkurborg gott á undanförnum árum með einhverjum öðrum hætti.
„Í Reykjavík eru fjölmargir fyrirmyndarborgarar sem hugsa stöðugt um hag borgarinnar og borgarbúa og láta til sín taka við að halda borginni snyrtilegri og fallegri. Ég hvet íbúa í Reykjavík til að benda á þá samborgara sína sem væru vel að þessum heiðri komnir. Valið hefur tekist afar vel í fyrstu tvö skiptin, en bæði Gunnlaugur Sigurðsson og Theodóra Guðrún Rafnsdóttir, sem hafa hlotið þennan titil eru mikið sómafólk,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.
Reykvíkingur ársins hlýtur vegleg verðlaun frá Reykjavíkurborg og fær m.a. boð frá borgarstjóra um að opna Elliðaárnar með honum. Auk þess fær hann árskort í sundlaugar ÍTR, árskort í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, Menningarkortið til eins árs og leikhúsmiða í Borgarleikhúsið.
Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir 22. maí 2013.
Þriggja manna dómnefnd mun velja Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.